Ég verð ekki við næstu daga þar sem ég verð í sjálfboðastarfi við að gæta utankjörstaðaatkvæða þangað til á Laugardagskvöld. Meðfylgjandi mynd var tekin rétt í þessu af mér og Halldóri Sigurjónssyni sem var að skila sínu atkvæði. Hann sagðist ekki vera viss hvað hann ætti að kjósa á Laugardaginn þannig að hann ákvað að vera snemma í þessu og gera þetta utan kjörstaðar.
fimmtudagur, maí 10, 2007
Kjördagur nálgast
Ég verð ekki við næstu daga þar sem ég verð í sjálfboðastarfi við að gæta utankjörstaðaatkvæða þangað til á Laugardagskvöld. Meðfylgjandi mynd var tekin rétt í þessu af mér og Halldóri Sigurjónssyni sem var að skila sínu atkvæði. Hann sagðist ekki vera viss hvað hann ætti að kjósa á Laugardaginn þannig að hann ákvað að vera snemma í þessu og gera þetta utan kjörstaðar.
Nikkan misnotuð
Ég er nýkomin af bráðskemmtilegum mótmælum sem fóru fram í Kjörgarði nú fyrir stundu.Við kunningjarnir úr áhugamannafélagi Harmonikkunnar á Íslandi komum saman á Laugavegi við Kjörgarð og mótmæltum misnotkun á hljóðfærinu. Í blíðskaparveðrinu voru komnir nokkrir sígunar að spila létta sjómannaslagara í bland við pólka fyrir gesti og gangandi. Allt í lagi með það nema að enginn kannaðist við lögin, þar að auki voru þau illa spiluð og einnig kom fyrir að lag var ekki klárað því sumir þeirra áttu erfitt með halda takti með bassatökkunum.
Við félagarnir ákváðum því að mótmæla þessu og kölluðum á spilarana "Niður með Nikkuna". En það gekk ekki eftir þar til að lögreglan kom inn á milli okkar og stöðvaði hamaganginn. Varðstjórinn sagði mér að þetta væru þrælar frá Rúmeníu. Já öll erum við þrælar Nikkunnar.
miðvikudagur, maí 09, 2007
Tilraun 19.2

Á mánudaginn hitti ég Smára "Göngugarp" Gunnarsson Optical Studio í Smáralind. Við spjölluðum um stund og ákváðum að hittast seinna um daginn og gera örlitla tilraun.
Kl 15:20 var Smári mættur á vinnustofuna mína í Templarahöllinni og við hófumst handa við tilraunina sem við ákváðum að nefna 19.2. Það sem þurftum í tilraunina var álpappír, álskál, kakómjólk, salt ,A4 blað, áltappa af gosflösku og E 0.42 gítarstreng. Tilraunin var að krumpa gítarstrengin og hreyfa hann fyrir ofan tappann. Álpappírinn og A4 blaðið bjuggu til stöðurafmagn. Og viti menn, þetta tókst. Tappinn hreyfðist. Álskálinn og saltið voru einungis með til öryggis ef stöðurafmagnið yrði ekki stöðugt. Við skiptum á milli okkar kakómjólkinni til búa til smá skán á magan til að vernda hann.
Farinn til Finnlands
Fyrrum forfallakennarinn Eiríkur Hauksson talaði til mín nú rétt í þessu. Hann sagði að hann þyrfti á mínu Eurovísíon stuði að halda. Ég var ekki lengi að taka upp símtólið, hringdi í vinkonur mínar á Bóhem, og við erum á leiðinni til Helsinki að styðja okkar mann. Við ætlum að vera fremst við sviðið með sautjánda júní fána og reyna að vinka Eríki og gítarvinum hans. Meðfylgjandi mynd var tekin í morgun á leiðinni út á flugvöll.
föstudagur, september 30, 2005

Einn ljósmyndari hefur sótt um lausa starfið og hér á myndinni til vinstri erum við á góðri stundu í myndveri hans (Myndavélin var sett á Tímer). Hann heitir Vilhjálmur Þórarinsson og er ljósmyndari að mennt. Enn því miður þurfti ég að reka hann vegna þess að hann laug á umsókninni sinni. Hann fermdist aldrei og hann hafði ekki hugmynd um að KFUMogK væru með aðsetur í Neðra-Breiðholti. Einnig er hann hávaxinn.
Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)